Free Visitor Counters
Biafine WDE
Saga safnsins

Stofnun Samgönguminjasafnsins Ystafelli á sér í raun langan aðdraganda en vorið 1995 var farið að tala um það í alvöru að byggja skemmu yfir eitthvað af þeim mikla fjölda af bílum og tækjum sem til voru að Ystafelli. Það var svo 28. des 1998 að Samgönguminjasafnið Ystafelli var stofnað formlega af Ingólfi Lars Kristjánssyni og Kristbjörgu Jónsdóttur.

Ingólfur er fæddur og uppalinn í Reykjavík en fluttist með Kristbjörgu að æskuheimili hennar 1946, en hún hafði farið suður að vinna nokkrum árum áður. Ingólfur byrjaði strax með bílaútgerð, keyrði mjólk til Húsavíkur og var í vegagerð á sumrin. Fyrstu árin notaði hann aðallega tvo Bedford bíla frá hernum og svo var Doddsinn (Þ 127) alltaf reiðubúinn í kaupstaðaferðir og allt annað sem þurfti að fara, hann er til ennþá og við góða heilsu. Þess má geta að Ingólfur keypti hann beint af norska hernum með hjálp Sveins Egilssonar, en þar lærði hann bifvélavirkjun. Ingólfur er eini einstaklingurinn sem hefur átt þennan Dodge Carry All 1940, Ingólfur og Kristbjörg notuðu hann við flutningana norður.

 

Herjeppi og Dodge Carry All Þ-127.

Ford Mustang 1997 og 1969.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ingólfur hefur verið með bílaverkstæði frá því hann kom fyrst norður og þeir eru ófáir sem hafa notið liðsinnis hans í áranna rás. Fljótlega eftir að verkstæðið reis fóru að safnast saman ýmsir hlutir sem tilheyrðu bílum og öðrum farartækjum og eru þessi gull nú sá efniviður sem þetta safn byggir á. Mikið hefur verið um það nú hin síðari ár að verkstæði og einstaklingar hafa komið með hluti til varðveislu, þetta eru bæði nýir og notaðir varahlutir sem hafa orðið eftir á lagerum og annars staðar, og menn vilja ekki að þeir glatist.

Það fór ekki hjá því að bílasafnið sem breiddi æ meira úr sér við Ystafell yrði ýmsum þyrnir í augum. Sumir töluðu um "bílakirkjugarð" sem væri lýti á umhverfinu. En tímarnir hafa breyst og hugmyndir manna um menningarsögulegt gildi gamalla þarfaþinga, sem fylgt hafa manninum og allir eiga sér sögu, eru nú aðrar en þær voru fyrir fáum árum. Margir áhugamenn um gamla bíla hafa litið við í Ystafelli á síðustu árum og lútið höfði á þessum "helgistað" bílaáhugamanna. Þar sem áður var hinn svonefndi "bílakirkjugarður" stendur nú Samgönguminjasafnið Ystafelli. Og utan safnsins sjálfs er enn ýmislegt að sjá því byggingin rúmar ekki alla safngripina.

 

Jónas Sigurðsson var gestur nr. 5000.

Sýningarsalurinn í júlí 2003.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Helsta hlutverk Samgönguminjasafnsins er að safna samgöngutækjum og varðveita þau svo og upplýsingum og myndefni úr samgöngusögu Íslands. Á þessari síðu er að finna skrá yfir helstu sýningargripi og ennfremur stuttar frásagnir til fróðleiks og skemmtunar af bílum og bílstjórum og öðru sem tengist samgöngum á vegum og vegleysum landsins. Og að auki myndir sem segja oft meira en mörg orð.

Ingólfur L. Kristjánsson varð bráðkvaddur 13. febrúar 2003 og Kristbjörg Jónsdóttir lést 6. apríl 2003 eftir stutta sjúkrahúslegu.

Sverrir Ingólfsson, sonur þeirra hjóna hefur starfað með föður sínum að endurbyggingu og viðhaldi véla og tækja um árabil. Sverrir sér nú um rekstur safnsins og áframhaldandi uppbyggingu þess, ásamt umsjón með safngripum.